Fjöldi erlendra ferðamanna leggja leið sína til Íslands á ári hverju í von um að líta norðurljósin augum. Besti tíminn til norðurljósaáhorfs er frá september og fram í miðjan apríl á milli klukkan 21:00 og 02:00, og þá sérstaklega um miðnætti.
Samkvæmt Vísindavefnum er hægt að sjá norðurljós hvar sem er á Íslandi ef svokallaður norðurljósakragi er yfir landinu, himininn er heiðskýr og myrkur er úti. Fyrir besta sjónarspilið er mælt með því að fara út fyrir ljósmengunina á höfuðborgarsvæðinu, en hvaða staðir ætli þyki þeir bestu til norðurljósaáhorfs?
Ferðavefur mbl.is tók saman fimm staði á Íslandi sem eru sérlega vinsælir meðal ferðalanga í leit að norðurljósum. Þeir eiga það allir sameiginlegt að bjóða upp á magnað landslag og litla ljósmengun sem gerir sjónarspilið enn flottara.