Fór á skeljarnar í Gstaad

Varla er til fallegri staður til að játast sínum heittelskaða.
Varla er til fallegri staður til að játast sínum heittelskaða. Samsett mynd

Breski leikarinn Ed Westwick trúlofaði sig á dögunum. Sú heppna heitir Amy Jackson og er leikkona. Parið greindi frá trúlofuninni á Instagram á mánudag, en Westwick bað sinnar heittelskuðu í skíðaferð í Gstaad í Sviss. 

Westwick og Jackson byrjuðu að hittast árið 2021 en opinberuðu samband sitt tæpu ári síðar. 

Westwick er einna þekktastur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Gossip Girl, en þar túlkaði hann karakter sem allir elskuðu að hata, Chuck Bass. 

View this post on Instagram

A post shared by Amy Jackson (@iamamyjackson)

View this post on Instagram

A post shared by Ed Westwick (@edwestwick)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert