Á glæsilegum útsýnisstað við Þingvallavatn er að finna fallegt sumarhús sem er í eigu Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands í handbolta og núverandi þjálfara karlaliðs Fredericia í Danmörku, og eiginkonu hans Fjólu Ósland Hermannsdóttur hönnuðar.
Hjónin eru greinilega miklir fagurkerar, en árið 2020 veittu þau lesendum Smartlands innlit á fallegt heimili sitt í Norðlingaholti.
Að innan hefur bústaðurinn verið innréttaður á minimalískan og stílhreinan hátt þar sem mismunandi áferð úr náttúrunni eins og steypa og viður skapa karakter. Gólfsíðir gluggar setja svo svip sinn á rýmið og veita guðdómlegt útsýni yfir Þingvallavatn og til fjalla.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými. Í borðstofunni má sjá fallega hönnun, þar á meðal tímalausu Sjöurnar sem danski arkitektinn Arne Jacobsen hannaði árið 1955. Yfir borðstofuborðinu hangir svo hið formfagra PH5-ljós úr smiðju hins danska Poul Henningsen frá árinu 1958, en það er óhætt að segja að rýmið sé með dönsku yfirbragði.
Stílhrein svört innrétting með stórri eldhúseyju prýðir eldhúsið á meðan fallegur arinn setur punktinn yfir i-ið í stofunni.
Í sumarbústaðnum eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi, en þar rúmast allt að fjórir næturgestir hverju sinni. Hjónin hafa sett húsið á leigu á bókunarvef Airbnb yfir sumarmánuðina, en í lok júlí kostar nóttin í húsinu 495 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmum 68 þúsund krónum. Hins vegar er nóttin ódýrari yfir vetrarmánuðina, en þau bjóða ekki upp á gistingu í bústaðnum fyrr en í janúar 2025 og þá kostar nóttin 417 bandaríkjadali eða tæplega 58 þúsund krónur.