Breska kóngafólkið Zara og Mike Tindall fóru í frí til Íslands á dögunum. Zara sem er dóttir Önnu prinsessu er næstelsta ömmubarn Elísabetar Bretadrottningar heitinnar. Eiginmaður hennar, Mike Tindall, deildi myndum frá ferðinni á Instagram-síðu sinni.
„Takk fyrir Ísland!!! Þvílíkur staður,“ skrifaði Mike Tindall þegar hann deildi myndum og myndskeiðum sem hann klippti saman. Tindall-hjónin vörðu tíma í Reykjavík en nutu líka íslenskrar náttúru þrátt fyrir snjó og frost.
Það sem sameinar Zöru og Mike Tindall er ástríða þeirra á íþróttum en Zara er fyrrverandi heimsmeistari í hestaíþróttum og Mike Tindall var í breska rúbbílandsliðinu. Það kemur því ekki á óvart að þau hafi ákveðið að kafa í ísjökulköldu vatni og lenda í fleiri ævintýrum á Íslandi í stað þess að liggja á sólarströnd.
Hér fyrir neðan má sjá myndskeiðið sem Mike Tindall deildi.