Kalifornía í Bandaríkjunum er heillandi áfangastaður sem býður upp á fjölbreytt landslag, töfrandi strendur og ævintýraleg sólsetur sem hafa heillað ófáa ferðalanga í gegnum tíðina.
Þekktustu áfangastaðir fylkisins eru án efa Los Angeles og San Fransisco, en það eru þó ekki einu staðirnir sem vert er að heimsækja enda er Kalifornía þriðja stærsta fylki Bandaríkjanna og er 424 þúsund ferkílómetrar að stærð.
Ferðavefur Travel and Leisure tók á dögunum saman lista yfir best geymdu leyndarmál Kaliforníu sem gætu átt heima á laupalista (e. bucket list) þínum.
Lost Coast er í um fimm klukkustunda akstursfjarlægð frá San Fransisco og er sannkölluð göngu- og útivistaparadís fyrir vana göngugarða. Strandlengjan einkennist af villtu og ósnortnu landslagi, en það er vinsælt að taka þrjá til fjóra daga í að ganga meðfram ströndinni og tjalda á fallegum stöðum sem þar finnast.
Í austurhluta Kaliforníu finnur þú forna saltvatnið Mono-vatn. Sérstakar kalksteinsmyndanir skera skapa ótrúlegt sjónarspil yfir vatnið, en það er einnig spennandi fuglalíf sem gaman er að kanna.
Salton Sea er stærsta stöðuvatn Kaliforníu og var eitt sinn vinsæll staður meðal Hollywood-stjarna á borð við Frank Sinatra og Bin Crosby. Í dag er staðurinn að mestu yfirgefinn og vatnið of mengað til að synda í – það er meira að segja strönd við vatnið sem er þakin í leifum dauðra fiska.
Í um klukkustunda akstursfjarlægð frá San Fransisco finnur þú töfrandi stað – Point Rayers. Þar er mikið af villtum blómum og spennandi dýralífi, en þaðan er einnig magnað útsýni yfir Kyrrahafið.
Shasta-vatn er sannkölluð útivistarparadís. Það er mælt með að ævintýrafólk bóki sér gistingu í húsbát á lóninu og njóti þess besta sem vatnið hefur upp á að bjóða – sund, vatnsskíði, veiði, þotuskíði og fleira. Í kringum vatnið eru svo skemmtilegar gönguleiðir fyrir hressa göngugarpa og stórbortið útsýni.