Eitt vinsælasta ferðablogg Bretlands, Hand Luggage Only, birti á dögunum lista yfir tíu bestu bæina á Íslandi sem þeir mæla með að ferðalangar heimsæki á ferðalagi sínu um Ísland.
Þeir Yaya Onalaja-Aliu og Lloyd Griffiths sjá um bloggið, en þeir hafa hlotið fjölda verðlauna fyrir efni sitt og eru þekktir fyrir ítarlegar og fróðlegar færslur og fallegar myndir.
10 bestu bæirnir á Íslandi að mati Hand Luggage Only
1. Vík í Mýrdal
Vík í Mýrdal er í efsta sæti listans, en bloggararnir mæla með því að fólk stoppi í bænum ef það á leið um hringveginn.
Ljósmynd/Unsplash/Julia Solonina
2. Reykjavík
Bloggararnir viðurkenna að Reykjavík sé vissulega borg en ekki bær, en þeir gátu ekki sleppt því að hafa hana á listanum.
Ljósmynd/Unsplash/Einar H. Reynis
3. Húsavík
Að sögn bloggaranna er Húsavík einn af bestu stöðunum á landinu til að sjá hvali.
Ljósmynd/Unsplash/Job Savelsberg
4. Akureyri
Bloggararnir viðurkenna aftur að á listanum sé borg, en þeir telja þó að andrúmsloftið á Akureyri líkist frekar bæ en borg.
Ljósmynd/Unsplash/Till Rottmann
5. Seyðisfjörður
Seyðisfjörður er í fimmta sæti listans, en bloggararnir segja að ferðalangar verði að heimsækja bæinn enda bjóði hann upp á ótrúlega fegurð allan ársins hring.
Ljósmynd/Unsplash/Izabela Kraus
6. Selfoss
Í færslunni mæla bloggararnir með stoppi á Selfossi, enda er stutt þaðan að heimsækja margar af fegurstu perlum Íslands.
Ljósmynd/Unsplash/Freysteinn G. Jonsson
7. Keflavík
Bloggararnir segja Keflavík vera svo miklu meira en bara flugvallabæ og mæla með því að fólk verji smá tíma þar í stað þess að bruna beint til Reykjavíkur.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
8. Hólmavík
Bloggararnir lýsa Hólmavík sem einum af fegurstu bæjum landsins.
mbl.is/Sigurður Bogi
9. Hellnar
Hellnar er eitt af elstu sjávarþorpum landsins, en þar í kring er ótrúlegt landslag sem vert er að skoða.
Ljósmynd/Unsplash/Misha Levko
10. Eskifjörður
Í síðasta sæti listans er hinn fagri Eskifjörður.
mbl.is/Rax