Á fallegum útsýnisstað við höfnina á Flateyri er að finna einstaka villu á tveimur hæðum sem var nýlega uppgerð og innréttuð á afar sjarmerandi máta.
Á neðri hæðinni er bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Aukin lofthæð er í rýminu ásamt fallegum gluggum sem setja svip sinn á rýmið. Svo virðist sem reynt hafi verið að halda í sem flesta upprunalega eiginleika hússins þegar það fékk yfirhalningu, en þar má nefna heillandi gólf, málaðan viðarpanil á veggjum, hlaðinn bita og spýtur sem skapa þetta notalega yfirbragð sem gleður augað.
Í rýminu má sjá fallega húsmuni í hverju horni þar sem gamalt og nýtt mætist. Í eldhúsinu má til dæmis sjá svarta stílhreina innréttingu á móti skemmtilegri eldhúseyju með hrárri viðaráferð sem gefur rýminu mikinn karakter.
Litir og áferð úr náttúrunni eru í forgrunni í húsinu þar sem djúp en notaleg litapalletta ræður ríkjum. Fagurblár litur á veggpanill spilar stórt hlutverk og setur tóninn í rýmunum, en þar má einnig sjá rauða og græna tóna.
Á efri hæð hússins eru fjögur svefnherbergi og rúmgott baðherbergi með fallegu baðkari og stórum glugga sem veitir útsýni til sjávar og fjalla. Eignin er til útleigu á Airbnb og rúmar allt að níu næturgesti hverju sinni, en nóttin í húsinu í byrjun júlí kostar 586 bandaríkjadali eða sem nemur rúmum 83 þúsund krónum á gengi dagsins í dag.