Margir leggja mikla áherslu á að ná að sofna um borð í flugvél. Það getur hins vegar reynst snúið fyrir suma.
Sálfræðingurinn Erica Terblanche gefur fylgjendum sínum ráð á samfélagsmiðlum um hvernig má festa svefn í flugvél.
„Aðferðin kallast „going over the alpha bridge“ og er mjög einföld og felur í sér nokkur skref sem þarf að fylgja. Maður á að liggja eða sitja í þægilegri stellingu (sem getur verið áskorun um borð í flugvél en maður þarf samt sem áður að reyna að láta fara vel um sig). Svo á maður að loka augunum og telja upp að 30. Því næst á maður að opna augun bara örlítið, líkt og um hálfmána væri að ræða, og telja upp að fimm. Svo á maður að loka aftur augunum og telja upp að þrjátíu. Svo opna aftur örlítið og telja upp að fimm. Loka augunum og fylgjast með andardrættinum. Flestir sofna eftir eina umferð.“