Selma Björnsdóttir, tónlistarkona, leikkona og leikstjóri, fagnaði fimmtugsafmæli sínu á Spáni í gær. Selma birti fallega mynd af sér í hvítum síðkjól í sólinni og þakkaði fyrir afmæliskveðjurnar.
„Kæru vinir! Hjartans þakkir fyrir kveðjurnar hér á FB, símtölin, myndbandskveðjurnar og óvæntu uppákomurnar í tilefni 50 ára afmælis míns. Ég fagnaði því í faðmi fjölskyldunnar á Spáni og þau gerðu daginn að einu stóru ævintýri,“ skrifaði Selma meðal annars við myndina af sér í sólinni.
„Ég vil serstaklega þakka mínum heittelskaða Kolbeinn Tumi Dadason sem sá um að plana Aldís Agla Sigurðardóttir og Andrea Sigurðardóttir sem sáu um að klippa vænan myndbandspakka fyrir mig sem ég mun lifa lengi á. Þakka auðvitað öllum hinum líka innilega fyrir þeirra framlög. Mikið er ég rík að eiga ykkur öll að. Ég svíf inn í 5. tuginn á bleiku skýi Ást og kærleikur á línuna.“
Smartland fjallaði um afmæli Selmu í gær en auk þess var viðtal við hana í Morgunblaðinu í tilefni stórafmælisins.