Ástralski tónlistarmaðurinn Nick Cave er mættur á klakann og dreif sig beint í sjósund.
Eiginkona Cave, fatahönnuðurinn Susie Cave, birti skemmtilega mynd af þeim hjónakornum á Instagram fyrr í dag þar sem hún sést hlýja eiginmanni sínum eftir kalda dýfu í sjónum.
Cave er með þrenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu og eru þeir fyrstu í kvöld. Uppselt er á alla tónleika Cave. Með honum á sviðinu verður Colin Greenwood úr Radiohead.