Hildur Vala og Kjartan í foreldrafríi í Króatíu

Parið geislar af hamingju.
Parið geislar af hamingju. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir nýtur lífsins um þessar mundir í Króatíu. Hildur Vala er í fríi ásamt sambýlismanni sínum, Kjartani Ottóssyni sem starfar hjá KPMG. 

Síðastliðnir mánuðir hafa verið afar annasamir hjá leikkonunni en hún hefur heldur betur hrifið leikhúsgesti, bæði unga sem aldna, í hlutverki sínu í söngleiknum Frost sem var frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins í byrjun mars. Hildur Vala fer með hlutverk snjóprinsessunnar Elsu. 

Leikkonan hefur birt þó nokkrar myndir frá ferðalaginu á Instagram-reikningi sínum og virðist parið vera að njóta hverrar mínútu. Hildur Vala og Kjartan hafa meðal annars heimsótt eyjurnar Pakleni og Hvar. 

View this post on Instagram

A post shared by Hildur Vala (@hildurvalaa)

View this post on Instagram

A post shared by Hildur Vala (@hildurvalaa)

View this post on Instagram

A post shared by Hildur Vala (@hildurvalaa)





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert