Með þráhyggju fyrir því að pakka í töskur

Zooey Deschanel er dugleg að pakka í töskur.
Zooey Deschanel er dugleg að pakka í töskur. AFP/Michael Tran

Hollywood-stjarnan Zooey Deschanel og sjónvarpsstjarnan Jonathan Scott leggja jafnmikið af mörkum þegar þau fara í ferðalög. Styrkleikar þeirra liggja þó á mismunandi sviðum. 

„Ég fæ þráhyggju yfir því að pakka í allar töskur – ég vil vera undirbúin undir allt,“ sagði Deschanel í viðtali við People

„Jonathan hins vegar er frábær í þessu praktíska, að skipuleggja og sjá um dagskrána,“ sagði leikkonan um unnusta sinn. 

Börn Deschanel fá hins vegar að njóta og þurfa ekki að sjá um neitt. Leikkonan á hina átta ára gömlu Elsie og sex ára gamla Charlie með fyrrverandi eiginmanni sínum. „Þau njóta bara ferðarinnar og borða naslið sitt.“

Zooey Deschanel og Jonathan Scott hjálpast að þegar þau ferðast.
Zooey Deschanel og Jonathan Scott hjálpast að þegar þau ferðast. AFP/Michael Tran
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert