Köngulóarmaðurinn í ástarævintýri á Ítalíu

Leikarinn Tobey Maguire og fyrirsætan Babette Strijbos eru sögð vera …
Leikarinn Tobey Maguire og fyrirsætan Babette Strijbos eru sögð vera nýjasta stjörnuparið. Samsett mynd

Leikarinn Tobey Maguire og fyrirsætan Babette Strijbos sáust kyssast í heitum faðmlögum í strandarbænum Porto Cervo á Ítalíu á dögunum.

Strijbos, sem er 24 ára, er sögð vera önnur ástkonan sem hinn 49 ára gamli Maguire hefur sést með síðan hann skildi við fyrrverandi eignkonu sína Jennifer Meyer árið 2016. Þó er aðeins um mánuður síðan leikarinn sást með annarri ungri fyrirsætu en 25 ára aldursmunur er á Strijbos og Maguire.

Í heitum faðmlögum á ströndinni

Samkvæmt myndum sem voru birtar af nýja parinu á fjölmiðlinum Daily Mail var parið á lítilli einkaströnd þar sem fyrirsætan var í litlu brúnu bikinki og leikarinn í skrautlegum Havaí sundbuxum. 

Á einum tímapunkti fóru þau að kæla sig í sjónum og þá tóku þau þétt utan um hvort annað þar sem þau störðu djúpt í augun á hvort öðru. Það er því skiljanlegt að þau stóðust ekki freistinguna um að stela nokkrum kossum á rómantískri stundu.

Ítalía hefur heillað margar stórstjörnur

Það er þó ekki að undra að ástin blómstri á Ítalíu enda hefur landið upp á að bjóða rómantískar borgir, stórfenglegt landslag og ógleymanlega matarupplifun. 

Aðeins á þessu ári hafa fjölmargar stjörnur fallið fyrir Ítalíu á borð við Jennifer Lopez, Halle Bailey og John Legend. 

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert