Kristófer og Guðrún eldheit í Lundúnum

Parið tók sig vel út með Ray Ban-sólgleraugu.
Parið tók sig vel út með Ray Ban-sólgleraugu. Skjáskot/Instagram

Körfuknattleiksmaðurinn Kristófer Acox er staddur í Lundúnum ásamt sinni heittelskuðu, Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur knattspyrnukonu.

Kristófer, sem varð Íslandsmeistari með Val í maí, birti myndaseríu á Instagram-reikningi sínum í gærdag og sýndi aðeins frá ferðalagi parsins. 

„Shades of London,“ skrifaði hann við færsluna. 

Kristófer og Guðrún Elísabet opinberuðu samband sitt fyrr í sumar og virðast yfir sig hrifin hvort af öðru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert