Sjóðheit í agnarsmáu bikiníi á Ibiza

Kendall Jenner hefur varið flestum dögum sumarsins á ströndinni.
Kendall Jenner hefur varið flestum dögum sumarsins á ströndinni. Samsett mynd

Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner hefur heldur betur verið að njóta sín á Ibiza að undanförnu ásamt vinum sínum. Á dögunum deildi hún sjóðheitum myndum af sér í agnarsmáu bikiníi, en Jenner var stödd á lúxussnekkju þegar myndirnar voru teknar. 

Í bátsferðinni sást hún meðal annars bruna á sæþotu með vini sínum og fyrirsætunni Fai Khadra.

Bikiní er uppáhalds sumarklæðnaður Jenner 

Jenner á lúxussnekkju á Ibiza.
Jenner á lúxussnekkju á Ibiza. Skjáskot/Instagram

Jenner kann svo sannarlega að gera vel við sig í sumarfríinu, en hún hefur varið meirihluta sumarsins á bikiníinu á fallegum ströndum víðs vegar um heiminn. Fyrir átta vikum birti hún til að mynda glæsilega bikinímynd af sér á snekkju við strendur Majorka.

Jenner við strendur Majorka.
Jenner við strendur Majorka. Skjáskot/Instagram

Það hefur verið nóg um að vera hjá fyrirsætunni í sumar, en hún og rapparinn Benito Antonio Martínez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, hafa verið að stinga saman nefjum á ný eftir sambandsslit í desember í fyrra.

Þau hafa sést saman nokkrum sinnum á þessu ári en gerðu út um allan orðróm þegar þau mættu saman á Voge World-tískuviðburðinn í París þann 23. júní síðastliðinn. 

Page six

View this post on Instagram

A post shared by Kendall (@kendalljenner)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert