Sleikir sólina í fantaformi á Ítalíu

Það er enginn vafi á því að bandaríska leikkonan Heather …
Það er enginn vafi á því að bandaríska leikkonan Heather Graham hafi fundið æskubrunninn. Samsett mynd

Það væs­ir ekki um hina glæsi­legu Heather Graham sem er um þess­ar mund­ir stödd í fríi á Ítal­íu. Leikkonan birti myndasyrpu af sér á Instagram þar sem hún sleikti sólina á ströndinni ásamt kærasta sínum, snjóbrettamanninum John de Neufville.

Graham, best þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Boogie Nights og Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, er dugleg að ferðast og óhrædd við að deila sjóðheitum bikinímyndum frá hinum ýmsu heimshornum.

Myndasyrpan sló ræki­lega í gegn og virt­ist hitta beint í mark hjá aðdá­end­um leik­kon­unn­ar. Gra­ham, sem fagnaði 54 ára afmæli sínu fyrr á árinu­, klædd­ist meðal annars eldrauðu bik­iníi þegar hún stillti sér upp fyrir myndavélina.

Ítalíu er í miklu uppáhaldi hjá Graham og de Neufville, en þau heimsóttu Positano í október á síðasta ári. 

Graham hefur lítið sést á skjánum síðustu ár en hún staðfesti nýverið að hún muni fara með hlutverk í spennumyndinni They Will Kill Us. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert