Helga Þóra fagnaði afmælinu í Köben með Brynjari

Helga Þóra Bjarnadóttir og Brynjar Barkarson skelltu sér til Köben!
Helga Þóra Bjarnadóttir og Brynjar Barkarson skelltu sér til Köben! Samsett mynd

Helga Þóra Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra Íslands, fagnaði nýverið afmæli sínu ásamt kærasta sínum, tónlistarmanninum Brynjari Barkarsyni, í Kaupmannahöfn. 

Smartland greindi frá því í vor að Helga Þóra og Brynjar væru nýtt par, en þau opinberuðu samband sitt í mars. 

Parið ákvað að fagna afmæli Helgu Þóru með stæl og héldu upp á afmælishelgina í Kaupmannahöfn. Þar nutu þau sín í botn, en Helga Þóra birti TikTok-myndband frá helginni sem var greinilega full af góðum mat og ljúfum stundum. 

Í myndbandinu sjást þau einnig fara í siglingu, á fatamarkað, matarmarkað og svo fékk Helga Þóra að sjálfsögðu afmælisköku með stjörnuljósi í tilefni dagsins. 

@helgaathora

afmælishelgi í köben🌟

♬ No More - Bellaire
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert