Nú getur þú gist í Polly Pocket húsi

Húsið er tilvalið til að halda skemmtilegt partí.
Húsið er tilvalið til að halda skemmtilegt partí. Skjáskot/Airbnb

Einhverjir muna eflaust eftir Polly Pocket-leikföngunum sem slógu rækilega í gegn í kringum aldarmótin. Nú geta þeir upplifað alvöru nostalgíukast og bókað gistingu í risavöxnu dúkkuhúsi í anda Polly Pocket. 

Húsið, sem er í borginni Littleton í Massachusetts í Bandaríkjunum, er nýjasta viðbótin á bókunarvef Airbnb og var hannað í tilefni að 35 ára afmæli Polly Pocket. 

Gúmmí föt og litrík snyrtiaðstaða

Húsið hentar vel til veisluhalda og býður upp á alvöru Polly Pocket upplifun. Í fataskáp hússins hanga dúkkuföt í raunstærð sem gestir geta mátað, en fötin eru nauðalík frægu gúmmí fötunum sem Polly Pocket-dúkkurnar voru klæddar í. 

Þegar gestir hafa mátað öll fötin og fylgihlutina í fataskápunum er svo tilvalið að fara upp á aðra hæð hússins og prufa snyrtiaðstöðuna sem er hlaðin litríkum snyrtivörum. 

Síðan er tilvalið að næla sér í ferskan drykk í dúkkubolla áður en gengið er út í garð þar sem meðal annars má finna útilegutjald sem gestirnir gista svo í eftir ógleymanlegt nostalgíupartí. Airbnb mun opna fyrir bókanir 21. ágúst næstkomandi.

New York Post

@nbc10boston While Polly is away on an epic adventure celebrating her 35th birthday, guests can stay in her two-story pad in Littleton, Massachusetts. #nbc10boston #pollypocket #rent #airbnb #house #massachusetts #90s #viral #news #video #fyp @mattel @airbnb @TODAY Show @Derek Z ♬ original sound - NBC10 Boston
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert