57 ára og neitar að fela gráu hárin

Leikkonan hefur ekkert að fela.
Leikkonan hefur ekkert að fela. Samsett mynd

Á sunnudag deildi leikkonan Salma Hayek sjóðheitum bikinímyndum frá spænsku eyjunni Ibiza með fylgjendum sínum á Instagram.

Myndaröðin sló rækilega í gegn og virtist hitta beint í mark hjá aðdáendum leikkonunnar, en fylgjendur hennar á samfélagsmiðlasíðunni telja ríflega 28 milljónir.

Hayek, sem er 57 ára gömul, fékk mikið lof fyrir náttúrulegt útlit sitt og var henni sérstaklega hrósað fyrir að sýna gráu hárin. Leikkonan, best þekkt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Frida, var afar glæsileg í gulu bikiníi og með rautt naglalakk á tánum, í stíl við liti spænska fánans.

„Gult bikiní + hvítt hár = fullkomin samsetning,” skrifaði Hayek við færsluna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert