Beyoncé fagnaði 43 ára afmælinu með stæl

Það væsti ekki um Beyoncé á 43 ára afmælisdaginn!
Það væsti ekki um Beyoncé á 43 ára afmælisdaginn! Samsett mynd

Tónlistardívan Beyoncé fagnaði 43 ára afmæli sínu á dögunum. Það væsti ekki um söngkonuna á afmælisdaginn, en hún naut dagsins til hins ýtrasta á ströndinni með eiginmanni sínum, rapparanum Jay Z. 

Beyoncé gaf aðdáendum sínum innsýn í suðræna og seiðandi afmælisferð sína á Instagram. Hún byrjaði á því að deila töfrandi myndum af sér í sjónum, meðal annars þar sem hún er með vindil og drykk í hendi. 

Á afmælisdaginn klæddi hún sig upp og deildi afmælismyndum af sér með afmælisblöðrur í hendi með yfirskriftinni: „Ég er svo þakklát fyrir enn eitt árið. Takk fyrir kærleiksríku afmæliskveðjurnar.“

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert