Himininn logaði glatt yfir Barðaströnd

Rán Bjargardóttir fylgdist með magnaðri sýningu.
Rán Bjargardóttir fylgdist með magnaðri sýningu. Samsett mynd

Rán Bjargardóttir, ljósmyndari og ævintýrakona, fangaði stórbrotnar ljósmyndir af dansi norðurljósanna í nótt. Norðurljósin lýstu upp himininn yfir Barðaströnd á sunnanverðum Vestfjörðum og sýndu sínar allra bestu og litríkustu hliðar. 

Rán, sem hefur verið á heljarinnar ferðalagi um landið síðustu mánuði, með myndavél í hönd, deildi einstakri myndaseríu af ljósadansinum á Instagram-síðu sinni fyrr í dag. Myndirnar hafa vakið mikla athygli, enda heillar kynngimögnuð fegurð norðurljósanna alla. 

„Kosmískt „rave“

Himininn logaði yfir Íslandi í gærkvöldi. Þvílík sýning sem ég varð vitni að á Vestfjörðum,“ skrifaði Rán meðal annars við færsluna sem fjölmargir hafa þegar líkað við.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert