Þetta eru flottustu Airbnb-villurnar á Balí

Einstök fagurfræði einkennir villurnar!
Einstök fagurfræði einkennir villurnar! Samsett mynd

Það eru fáir sem myndu slá hendinni á móti töfrandi fríi á Balí í Indónesíu, enda staður sem prýðir laupalista (e. bucket list) margra. Balí er þekkt fyrir einstakt úrval af fyrsta flokks hótelum, en á undanförnum árum hafa sífellt fleiri glæsivillur verið skráðar til útleigu á bókunarvef Airbnb.

Ferðavefur mbl.is tók saman fimm villur á Balí sem eru til útleigu á Airbnb, en þessar villur standa allar upp úr þegar kemur að hönnun, fagurfræði og stemningu. 

Stílhrein og björt hönnunarparadís

Í suður Kuta á Balí stendur guðdómleg hönnunarvilla sem hefur verið innréttuð á sérlega sjarmerandi máta. Húsið er bjart og opið með mikilli lofthæð og stórum gluggum, en þar hefur náttúran verið dregin inn með litavali og vali á efnivið. Í garðinum má svo sjá fallega sundlaug og notalega aðstöðu þar sem gestir geta sólað sig.

Boðið er upp á að leigja herbergi í húsinu á Airbnb á 80 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmum 11 þúsund krónum á gengi dagsins í dag. 

Húsið hefur verið innréttað á afar hlýlegan máta.
Húsið hefur verið innréttað á afar hlýlegan máta. Ljósmynd/Airbnb.com
Hvert smáatriði er útpælt.
Hvert smáatriði er útpælt. Ljósmynd/Airbnb.com
Í garðinum er notaleg aðstaða við sundlaugina.
Í garðinum er notaleg aðstaða við sundlaugina. Ljósmynd/Airbnb.com

Sjarmerandi sumarhús með ótrúlegu útsýni

Í Kintamani á Balí er að finna fallegt sumarhús með stórkostlegu útsýni yfir náttúrufegurðina í kring, þar á meðal eldfjöll, hraun og gígvötn. Sumarhúsið hefur verið innréttað með það að markmiði að skapa afslappað og róandi rými þar sem gestir geta safnað orku. Lita- og efnisval hússins er innblásið af náttúrunni í kring og skapar einstaka stemningu.

Sumarhúsið er til útleigu á Airbnb, en það rúmar tvo næturgesti hverju sinni. Nóttin í húsinu kostar 155 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmlega 21 þúsund krónum.

Sumarhúsið er ekki stórt en þar er þó allt til …
Sumarhúsið er ekki stórt en þar er þó allt til alls til að slaka á og hafa það notalegt. Ljósmynd/Airbnb.com
Útsýnið frá sumarhúsinu er stórkostlegt.
Útsýnið frá sumarhúsinu er stórkostlegt. Ljósmynd/Airbnb.com
Aðstaðan við húsið er sérlega sjarmerandi.
Aðstaðan við húsið er sérlega sjarmerandi. Ljósmynd/Airbnb.com

Hrátt og heillandi heimili með antík-yfirbragði

Í Ubud á Bali stendur afar heillandi einbýlishús sem hefur verið innréttað á skemmtilegan máta. Hrátt yfirbragð er yfir húsinu þar sem nýtt og gamalt mætist og skapar ljúfa stemningu. Náttúrulegur efniviður og jarðlitir eru áberandi í hönnun hússins, en frá alrými hússins er opið út í garð með fallegri sundlaug og notalegri aðstöðu til afslöppunar. 

Húsið er til útleigu á Airbnb og rúmar allt að tvo næturgesti hverju sinni. Nóttin þar kostar 155 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmlega 21 þúsund krónum.

Falleg áferð og efnviður úr náttúrunni skapa karakter í húsinu.
Falleg áferð og efnviður úr náttúrunni skapa karakter í húsinu. Ljósmynd/Airbnb.com
Garðurinn er ekki síður heillandi.
Garðurinn er ekki síður heillandi. Ljósmynd/Airbnb.com
Sjarmerandi antíkmunir prýða húsið og skapa notalega stemningu.
Sjarmerandi antíkmunir prýða húsið og skapa notalega stemningu. Ljósmynd/Airbnb.com

Lúxusvilla með drauma útieldhúsi

Í Canggu á Balí stendur tignarleg lúxusvilla sem státar af einstakri hönnun. Hrátt yfirbragð og lúxus mætast inni í húsinu þar sem hátt er til lofts. Stórir sjarmerandi gluggar prýða eignina og hleypa mikilli birtu inn, en veita einnig útsýni yfir fallegan garð hússins. Það er svo einstakt útieldhús í garðinum sem setur punktinn yfir i-ið.

Átta næturgestir rúmast í húsinu hverju sinni, en það er til útleigu á Airbnb og kostar nóttin 700 bandaríkjadali, eða sem nemur um 97 þúsund krónum. 

Hrátt yfirbragð og mikill lúxus einkenna hönnun hússins.
Hrátt yfirbragð og mikill lúxus einkenna hönnun hússins. Ljósmynd/Airbnb.com
Fallegir húsmunir fá að njóta sín í húsinu.
Fallegir húsmunir fá að njóta sín í húsinu. Ljósmynd/Airbnb.com
Hver væri ekki til í að eiga guðdómlegt útieldhús eins …
Hver væri ekki til í að eiga guðdómlegt útieldhús eins og þetta? Ljósmynd/Airbnb.com

Strandarstemning og átta metra sundlaug

Í Canggu á Balí er einnig að finna fallega og bjarta villu þar sem mínimalísk strandarstemning ræður ríkjum. Það er mikið um ljósan við og bast, en þar að auki eru hvítir og bláir tónar áberandi í húsgögnum. Í garðinum er stór sundlaug, en við enda hennar er glæsilegur bar sem gleður sannarlega augað.

Húsið er til útleigu á Airbnb og rúmar allt að sex næturgesti hverju sinni. Nóttin kostar 376 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmum 52 þúsund krónum.

Það er notaleg strandarstemning í húsinu öllu.
Það er notaleg strandarstemning í húsinu öllu. Ljósmynd/Airbnb.com
Glæsilegur bar er við annan enda sundlaugarinnar.
Glæsilegur bar er við annan enda sundlaugarinnar. Ljósmynd/Airbnb.com
Barinn setur án efa punktinn yfir i-ið.
Barinn setur án efa punktinn yfir i-ið. Ljósmynd/Airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert