Gerir grín að íslenska veðrinu á TikTok

Veðrið í ferðinni ætti ekki að koma neinum Íslendingi á …
Veðrið í ferðinni ætti ekki að koma neinum Íslendingi á óvart. Ljósmynd/Instagram

Ferðaáhrifavaldur á TikTok sem kallar sig AdventureDeis heimsótti Ísland í annað skiptið á dögunum og leyfði fylgjendum sínum að fylgjast vel með ferðinni. Einnig gaf hann þeim sem vilja heimsækja landið fjöldamörg ráð.

Á myndskeiði sem hann birti á samfélagsmiðlinum dregur hann upp raunverulega mynd af íslenskri veðráttu, roki og rigningu, sem margir upplifa á meðan þeir heimsækja vinsælustu ferðamannastaði landsins. Heimsækir hann meðal annars Kerið, Seljalandsfoss og Geysi en stoppar mjög stutt á hverjum stað vegna veðurs. Þá virðist hann flýta sér mikið aftur inn í bíl og hefur líklega eytt meiri tíma þar en úti.

@adventuredeis The most accurate representation I can give you of an Icelandic roadtrip (it’s amazing) Follow for more! #travel #solotravel #fyp #iceland #icelandroadtrip #roadtripiceland #roadtrip #ringroad #driving #sightseeing #landmarks #crater #hotsprings #mountains #planewreck #waterfall #funny ♬ original sound - adventuredeis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert