Icelandair flýgur til Nashville

Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum er spennandi valkostur.
Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum er spennandi valkostur. Ljósmynd/Icelandair

Hvern dreymir ekki um að heimsækja Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum? Ef svo er þá mun íslenska flugfélagið Icelandair hefja flug þangað næsta sumar. Með því að bæta fluginu til Nashville við flugáætlun sína þá mun félagið fljúga til 18 áfangastaða í Norður-Ameríku sumarið 2025. 

Flogið verður fjórum sinnum í viku til Nashville frá 16. maí og út október á næsta ári. Tilkynnt var um nýja áfangastaðinn á blaðamannafundi á Nashville flugvelli nú rétt í þessu.

„Það er mjög ánægjulegt að bæta Nashville við okkar öfluga leiðakerfi og tengja tónlistarborgina við 34 áfangastaði okkar í Evrópu. Þannig hyggjumst við bjóða íbúum Tennessee upp á bestu leiðina til Íslands og áfram til Evrópu. Þá mun þessi nýja flugleið opna fyrir spennandi tengingar fyrir farþega frá Íslandi og Evrópu til fjölda áfangastaða vítt og breitt um Bandaríkin í gegnum Nashville,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í fréttatilkynningu. 

Nashville er þekkt fyrir tónlist, menningu og matargerð. Hún er oft nefnd tónlistarborgin, enda er hún höfuðborg kántrítónlistar en hún er ekki síður fræg fyrir popp, rokk, gospel og jasstónlist. Í RCA Studio B, sem nefnt hefur verið heimili þúsund smella er til að mynda hægt að sjá hvar Elvis Presley, Dolly Parton, Roy Orbison, Everly bræður og margir fleiri tóku upp sum sinna frægustu laga.

Fyrr í dag tilkynntu Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest tilvonandi samstarf. Fyrst um sinn verður horft til flugtenginga um Baltimore flugvöll, en stefnt er að því að útvíkka samstarfið frekar og tengja áætlanir flugfélaganna um fleiri flugvelli. 

Borgin er þekkt fyrir tónlist, menningu og góðan mat.
Borgin er þekkt fyrir tónlist, menningu og góðan mat. Ljósmynd/Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert