Best að fjölga þeim sem lifa af

Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir

Útivistarhópurinn Snjódrífurnar skunduðu á Helgarfell um síðustu helgi þar sem Lífskraftsdagurinn var haldinn. Markmiðið með deginum var að sýna samstöðu gegn krabbameinum ásamt því að minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu meðan á veikindum stendur eða eftir veikindi.

„Það er nauðsynlegt að efla og styrkja Lífskraftinn sinn með hreyfingu. Útivist er frábær leið til þess og erum við svo ótrúlega heppin að búa í landi sem býður upp á magnaða náttúru í bakgarðinum okkar. Með því að stunda reglulega hreyfingu og huga að heilbrigðum lífstíl erum við að sinna forvörnum og bæta lífsgæðin okkar um ókomna tíð,“ segir Sirrý Ágústsdóttir Snjódrífa og stofnandi Lífskrafts en hún þekkir það af eigin raun að fá krabbamein.

Á Lífskraftsdeginum gat fólk gengið á Helgafell, hlaupið eða hjólað í kringum það. Þeir sem vildu styrkja málefnið gátu keypt sér bleikar Lífskraftspeysur sem eru framleiddar af íslenska útivistarmerkinu 66°Norður. Allur ágóði af sölunni rennur til forvarnarverkefna á vegum Krabbameinsfélagsins á leghálskrabbameini.

„Það var frábært að heyra að Lífskraftur skyldi ákveða að styrkja Krabbameinsfélagið í ár. Markmið félaganna fara svo sannarlega saman því Lífskraftur leggur áherslu á hreyfingu sem hefur heilmikið forvarnargildi gegn fjölda krabbameina auk þess að bæta líðan fólks með krabbamein og að lokinni krabbameinsmeðferð. Markmið Krabbameinsfélagsins eru mjög skýr, að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og að bæta lífsgæði þeirra sem veikjast og aðstandenda þeirra. Hreyfing hjálpar til við að ná öllum þessum markmiðum. Takk kærlega fyrir - kæru Lífskraftskonur og vonandi verður Helgarfellið allt iðandi af fólki á hreyfingu,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
Ljósmynd/Eydís Ólafsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert