Fögnuðu fyrsta flugi til Lissabon með léttum veitingum

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs og Sandra Ferreira, …
Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs og Sandra Ferreira, flugvallarstjóri Lissabon flugvallar klippa á borðann. Ljósmynd/Icelandair

Á dögunum var farþegum í fyrsta flugi Icelandair til Lissabon í Portúgal boðið upp á léttar veitingar um borð. Fluginu var einnig fagnað á Keflavíkurflugvelli og við komuna til Lissabon.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Lissabon hafi bæst við öflugt leiðarkerfi Icelandair sem nær nú yfir um 60 áfangastaði í Evrópu og Norður-Ameríku.

Stefnt er á að flogið verði til Lissabon tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum.

„Borgin hefur upp á margt að bjóða og hefur þann einstaka kost að vera hvort tveggja sögufræg menningarborg og í nálægð við sólarströnd,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.

Í Lissabon er hægt að skoða falleg hverfi, arkitektúr og upplifa æðislega matarmenningu Portúgala auk þess að nokkrir staðir í borginni eru á heimsminjaskrá UNESCO.

Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum:

Starfsmenn Icelandair buðu upp á léttar veitingar.
Starfsmenn Icelandair buðu upp á léttar veitingar. Ljósmynd/Icelandair
Farþegar að vonum spenntir að fljúga til Lissabon.
Farþegar að vonum spenntir að fljúga til Lissabon. Ljósmynd/Icelandair
Það var hátíðlegt um að litast í flughöfninni.
Það var hátíðlegt um að litast í flughöfninni. Ljósmynd/Icelandair
Flugfreyjur tilbúnar að bjóða upp á portúgalskar kökur.
Flugfreyjur tilbúnar að bjóða upp á portúgalskar kökur. Ljósmynd/Icelandair
Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair ásamt áhöfn …
Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair ásamt áhöfn fyrsta flugsins. Ljósmynd/Icelandair
Gleðin skein úr hverju andliti.
Gleðin skein úr hverju andliti. Ljósmynd/Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert