Nýskilin og nakin á Fídjíeyjum

Willis nýtur lífsins á Fídjíeyjum.
Willis nýtur lífsins á Fídjíeyjum. Skjáskot/Instagram

Rumer Willis, elsta dóttir stórleikaranna Bruce Willis og Demi Moore, nýtur lífsins á Fídjíeyjum um þessar mundir. Willis, sem er nýorðin einhleyp, er í fríi ásamt ungri dóttir sinni, Louettu Isley. 

Willis, sem fylgdi í fótspor foreldra sinna og starfar sem leikkona, hefur deilt þó nokkrum ljósmyndum frá sólríku fríi þeirra mæðgna á Instagram og af myndum að dæma eru þær að njóta alls þess besta sem eyríkið í Suður-Kyrrahafi hefur upp á að bjóða. 

Nýjasta færsla leikkonunnar vakti þó sérstaka athygli netverja, en Willis, 36 ára, birti myndir af sér nakinni í útibaði. 

„Ég vil aldrei fara í bað innandyra aftur,“ skrifaði Willis við færsluna. 

Síðustu ár hafa verið fjölskyldu Willis erfið. Faðir leikkonunnar greindist með heilabilun í byrjun síðasta árs og hefur heilsu hans hrakað hratt að sögn aðstandenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert