Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, matargyðja og upplifunarstjóri Hagkaups, og eiginmaður hennar, Haraldur Haraldsson deildarstjóri Icelandair Cargo, eyddu langri helgi í höfuðborg Portúgals, Lissabon. Með í för var yngsta dóttir hjónanna, hin sex mánaða gamla Margrét Maren.
Eva Laufey gaf fylgjendum sínum innsýn í ferðalagið á Instagram-síðu sinni.
„Löng helgi í Lissabon,” skrifaði Eva Laufey við færsluna sem sýnir mæðgurnar meðal annars njóta sólarinnar á Praça do Comércio-torginu í miðbæ borgarinnar.
Lissabon hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Borgin hefur ítrekað lent á lista yfir bestu staði í heimi til að verja efri árunum og hlaut nýverið World Culinary Awards, sem ein besta matarborg Evrópu.