Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson, sem starfar á lögmannsstofunni Valdimarsson, er kominn til Bangkok í Taílandi með kærustu sinni Evu Margréti Ásmundsdóttur, sem er fasteignasali hjá Croisette. Parið ætlar að verja jólunum í Asíu en það er vinsælt að gera það á þessum árstíma því þar er heitt og notalegt.
Parið byrjaði saman í haust og fóru meðal annars saman í ferð til Berlínar saman.
Ómar festi kaup á íbúð við Lyngás í Garðabæ fyrr á þessu ári. Nú er íbúðin auglýst til leigu á Airbnb. Ómar hefur staðið í ströngu síðan hann festi kaup á íbúðinni og gert hana upp. Hann skipti til dæmis um eldhúsinnréttingu og fleira til þess að gera íbúðina sem vistlegasta. Það ætti því ekki að væsa um þá sem kjósa að leigja íbúðina yfir jól og áramót.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar á Airbnb.