4 skotheld ráð fyrir ferðalagið

Allir vilja áhyggjulaust frí.
Allir vilja áhyggjulaust frí. Unsplash.com/Jeshoot

Snjalltækin skipa sífellt stærri sess þegar kemur að því að njóta ferðalaga. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að rafhlaðan endist sem lengst og að maður sé búinn að hlaða niður öllum helstu forritum sem koma að gagni. Ferðavefur The Mirror tók saman nokkur skotheld ráð fyrir ferðalanga.

1. Passa að rafhlaðan endist

Það er fátt verra en að síminn deyi á ferðalagi. Það er ýmislegt hægt að gera til þess að spara rafhlöðuna eins og til dæmis að draga úr skjábirtunni, stilla á „low power mode“ í Settings, slökkva á Bluetooth, Wifi og öðru þegar ekki í notkun. Þá getur það einnig sparað batterí að setja á Airplane Mode þegar maður er að ferðast þar sem samband getur verið slæmt.

2. Fjárfesta í hlífðarbúnaði fyrir græjurnar

Það getur allt gerst á ferðalögum og græjurnar geta orðið fyrir hnjaski. Þess vegna er mikilvægt að tryggja öryggi t.d. með þar til gerðum hulstrum og hlífðargleri fyrir skjái. Slíkar fjárfestingar geta sparað manni talsverða fjármuni ef eitthvað fer úrskeiðis.

3. Stilltu á Find My Device

Það er martröð allra að týna símanum sínum. Til að hafa varann á þá skal stilla á „Find My Device“ stillinguna í símanum eða hafa annað sambærilegt forrit í gangi. Ef síminn týnist þá er líklegra að hann finnist. Þá er einnig hægt að læsa honum þannig að enginn geti hakkað sig inn í hann.

4. Þýðingarforrit

Ferðalögin ganga eins og smurt ef maður getur gert sig skiljanlegan. Nú þarf ekki lengur að fara á tungumálanámskeið áður en af stað er farið því til eru forrit sem gera mann skiljanlegan á næstum hvaða tungumáli sem er. Hægt er að notast við snjallforrit á borð við Google Translate, Google Gemini Live eða ChatGPT Voice. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert