Bæjarbúar í austurhluta Rúmeníu stíga bjarnardans

Bjarnarhátíðin er stærst í bænum Comanesti.
Bjarnarhátíðin er stærst í bænum Comanesti. Skjáskot/Youtube

Það þekkist vel að birnir leggist í dvala yfir vetrartímann, en þó má segja að þeir lifni við þann 30. desember ár hvert í Moldavíu, austurhluta Rúmeníu, þegar innfæddir flykkjast í bjarnarskrúðgöngu, klæddir í ekta bjarnarskinn, undir taktföstum trommuslætti og panflaututónum. 

Í Rúmeníu er stærsti stofn brúnbjarna í Evrópu, fyrir utan Rússland. Allt að 8.000 birnir þramma um skógi vaxnar hlíðar Karpatafjalla, enda dýrið orðið öflugt tákn um andlegan kraft í rúmenskri menningu.

Bæjarbúar klæða sig upp í alvöru bjarnarskinn, sem hafa verið í eigu innan fjölskyldunnar í árafjöld og vega um fjörutíu kíló. Gengið er um bæinn, í skinninu, á meðan dansað er við trommusláttinn og panflaututóna leiknum af tónlistarmönnum í hefðbundnum þjóðbúningum.

Í dansinum „deyja“ birnirnir á táknrænan hátt og rísa upp, sem táknar endurnýjun fyrir komandi ár. Hefðina má rekja til indóevrópska ættbálksins Geto-Dacia, Rómverja sem komu til Rúmeníu. 

Geto-Dacia litu á birnina sem heilög dýr og tákn um styrk og nýtt líf. Frægasta bjarnarhátíðin er haldin í bænum Comanesti.

BBC News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert