Vogue fer fögrum orðum um íslenskan mat

Vogue talar sérstaklega um íslenskan snúð og ber sem vaxa …
Vogue talar sérstaklega um íslenskan snúð og ber sem vaxa villt. Unsplash/Samsett mynd

Ameríska tísku- og lífsstílstímaritið Vogue hefur birt grein á vefsíðu sinni um tólf íslenska rétti sem fólk verður að smakka í heimsókninni til landsins. Tekið er fram í upphafi greinarinnar að Ísland sé frekar þekkt fyrir dramatíska náttúrufegurð en að fáir hafi nokkra hugmynd um matarmenningu landsins.

„Með fleiri ferðamönnum sem flykkjast til landsins þá hefur orðið mikil endurreisn í matarsenu Íslands. Kokkar bera fram ferskan fisk, frjáls lömb og gnægð berja sem vaxa villt um landið,“ segir í umfjölluninni. Einnig er tekið fram að íslenskur matur eigi vel heima á meðal matarborga eins og Kaupmannahafnar, Stokkhólms og meira að segja New York.

„Matgæðingar hafa fundið veitingastaði eins og Íslenska barinn, Matarkjallarann, KOL, Mat og drykk sem nota íslensk hráefni á frumlegan hátt.“

Í greininni má finna lista yfir tólf rétti sem fólk verður að prófa. Þeir eru: 

  1. Bæjarins Beztu
  2. Skyr
  3. Lambakjöt
  4. Ís og ostar
  5. Hákarl
  6. Rúgbrauð með smjöri
  7. Sjávarréttir
  8. Hangikjöt
  9. Snúður
  10. Svið
  11. Kjötsúpa
  12. Pönnukökur

Vogue

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert