Flugfreyja rekin fyrir að hrista rassinn um borð

Nella Diala starfaði hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines.
Nella Diala starfaði hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines. Skjáskot/TikTok

Nella Diala, fyrrverandi flugfreyju hjá bandaríska flugfélaginu Alaska Airlines, var sagt upp störfum skömmu eftir að hún deildi myndskeiði af sér á samfélagsmiðlasíðunni TikTok að hrista rassinn um borð vélar flugfélagsins.

Myndskeiðið, sem birtist á samfélagsmiðlasíðunni þann 17. nóvember síðastliðinn, vakti fljótt mikla athygli, alls ekki jákvæða, netverja og voru margir sem sögðu þetta óviðeigandi og niðurlægjandi fyrir flugfélagið.

Diala hafði starfað sem flugfreyja í sex mánuði þegar hún ákvað að búa til stutt myndskeið til að drepa tímann á milli flugferða, en engir farþegar voru um borð þegar hún „twerkaði“ fyrir myndavélina.

„Ghetto bih till i D-I-E, dont let the uniform fool you,“ skrifaði hún við myndskeiðið, en það má gróflega þýða sem „gettó-tík þar til ég dey, ekki láta einkennisbúninginn blekkja ykkur.“

Diala, sem bjóst ekki við að missa starfið vegna 15 sekúndna klippu, hefur nú sett upp styrktarreikning á GoFundMe til að vega upp tekjutapið. Hún hefur safnað tæpum 3000 bandaríkjadölum eða sem samsvarar um 400 þúsundum í íslenskum krónum. 

@_jvnelle415 Ghetto bih till i D-I-E, dont let the uniform fool you. #fyp #flightattendantlife @TruCarr ♬ snowfall - Øneheart & reidenshi


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert