Það væsir svo sannarlega ekki um Rakel Maríu Hjaltadóttur, förðunarfræðing, þjálfara og hlaupadrottningu, og Guðmund Lúther Hallgrímsson, stafrænan markaðsstjóra hjá Bláa lóninu, en þau eru stödd í rómantísku og sólríku fríi í Kólumbíu.
Rakel María og Guðmundur hnutu hvort um annað á síðasta ári og opinberuðu samband sitt á Instagram þegar þau sýndu frá töfrandi ferðalagi sínu um Grikkland og Albaníu í maí.
Rakel María hefur deilt ævintýralegum myndum og myndskeiðum frá ferðalagi parsins á samfélagsmiðlasíðunni og sýndi meðal annars frá heimsókn þeirra í Tayrona-þjóðgarðinn.
„Hamingjusöm kona að skoða heiminn. P.s. strendurnar í Kólumbíu fá 10/10,“ skrifaði hún við eina færsluna.