Í Eldfjallaþjóðgarðinum á Havaí, trónir hótelið Volcano House 1.219 metrum yfir sjávarmáli, á jaðri eins virkasta eldfjalls heims, Kilauea Halemaumau. Garðurinn er á heimsminjaskrá UNESCO og heimkynni tveggja af virkustu eldfjöllum í heimi, áðurnefnt Kilauea og svo Mauna Loa, auk Chain of Craters-vegarins, hraunbreiða, gufuopa og gróskumikils regnskógar.
Kilauea-eldfjallið er í næstum samfelldu gosástandi og hefur gosið sextíu sinnum síðan 1800 og þrisvar sinnum árið 2023.
Hótelið Volcano House býður ferðamönnum að vakna á brún Halemaumau-gígsins. Það samanstendur af sögulegum hótelherbergjum með king- eða queensize- rúmum, auk fjölskylduherbergja með auka svefnsófum.
Kaffivélarnar á herbergjunum eru fylltar af kaffi frá svæðinu. Standard-herbergin eru fallega innréttuð með sveitalegan blæ yfir sér og glugga sem vísa út að oft eldglóandi og spúandi gígnum.
Einnig er hægt að gista á tjaldsvæði þjóðgarðsins en starfsfólk hótelsins sér um að setja tjaldið upp og pakka því saman eftir á.
Nokkrir veitingastaðir eru á svæðinu og meðal þeirra er The Rim at Volcano House sem býður upp á morgun-, hádegis- og kvöldverð með útsýni út á gíginn á meðan borðað er.
Þess má geta að hótelið er með fjórar stjörnur af fimm á TripAdvisor.