Ása Steinars fræðir fólk um stórhættulega Reynisfjöru

Ása Steinars hvetur til þess að fólk kynni sér aðstæður …
Ása Steinars hvetur til þess að fólk kynni sér aðstæður við Reynisfjöru. Samsett mynd

Ferðaljósmyndarinn Ása Steinars fræddi fylgjendur sína á Instagram um einn fallegasta og jafnframt hættulegasta stað á Íslandi, Reynisfjöru, í nýrri færslu sem hún birti á samfélagsmiðlasíðu sinni. Færslan hefur vakið mikla athygli og hafa hátt í 20.000 manns líkað við hana á innan við sólarhring.

Ása hefur byggt sér upp stóran fylgjendahóp, en rétt tæplega ein og hálf milljón manna fylgist nú með ævintýrum hennar á Instagram.

Öldurnar við Reynisfjöru geta reynst ferðamönnum banvænar.
Öldurnar við Reynisfjöru geta reynst ferðamönnum banvænar. Unsplash/Neil Cooper

„Reynisfjara er bæði falleg og hættuleg. Hún er einn af vinsælustu ferðamannastöðum á Íslandi. Svartir sandar og stuðlaberg laða að gesti hvaðanæva úr heiminum en öldurnar eru það sem gera ströndina að fagurri dauðagildru, sérstaklega ef þú ert ekki meðvitaður um þær,” skrifar Ása við myndskeið þar sem sýnt er frá ströndinni.

„Þær kallast ólagsöldur (e. sneaker waves) og eru langmesta hættan. Þessar öldur eru óútreiknanlegar, geta náð miklu lengra en margir halda og hrifsað fólk út í kaldan sjóinn. Það sem er ruglingslegt er að það geta komið 12 litlar bylgjur og svo ein stór.

Straumarnir eru miklir og gera það nánast ómögulegt að komast aftur upp á land. Þrátt fyrir upplýsinga- og viðvörunarskilti fara sumir gestir enn of nálægt og því miður hafa þó nokkrir látist.

Ströndin er töfrandi staður sem vert er að heimsækja en hún er einnig góð áminning á hversu öflug náttúran getur verið. Að halda sig frá sjónum er öruggasta leiðin til þess að njóta.”

Hér má sjá Instagram-færslu Ásu



Fjöldi ferðamanna heimsækir staðinn árlega.
Fjöldi ferðamanna heimsækir staðinn árlega. Unsplash/Joshua Earle
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert