Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, er stödd á Ítalíu, nánar tiltekið í þorpinu Madonna Di Campiglio, í skíðaferð ásamt unnusta sínum, Jakob Fannari Hansen flugmanni, og nokkrum góðum vinum.
Athafnakonan, sem var valin markaðsmanneskja ársins í febrúar 2022, hefur deilt þó nokkrum myndum og myndskeiðum frá ferðalaginu í story á Instagram-síðu sinni og birti meðal annars mynd af þreyttum fótum sínum og sagði:
„Markmiði ferðarinnar náð - kláraði fyrstu skíðaferðina án þess að brjóta á mér lappirnar“.
Gerður Huld og Jakob Fannar eru mjög hrifin af Ítalíu og hafa ferðast til Evrópulandsins oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á síðustu mánuðum.
Jakob Fannar fór á skeljarnar í byrjun júlímánaðar í fyrra og bað sinnar heittelskuðu um borð í báti er sigldi um Garda-vatn, stærsta stöðuvatn Ítalíu.
Örfáum mánuðum síðar voru þau mætt aftur til Ítalíu, þá til Mílanó, þar sem þau skelltu sér á leik AC Milan og Liverpool. Verðandi brúðurin nýtti einnig tækifærið og mátaði nokkra brúðarkjóla í verslun í borginni, enda er Mílanó ein af hátískuborgum heims.