Rosalegt hús til leigu í Borgarnesi

Fegurðin er allt umlykjandi.
Fegurðin er allt umlykjandi. Skjáskot/Airbnb

Á milli sjávar og fjalla í Borgarnesi er fallegt og heillandi hús til leigu. Húsið er innréttað á minimalískan hátt og er auglýst á leigusíðunni AirBnb. Húsið er staðsett í Hafnarskógi, nálægt sjónum með dásamlegu útsýni. 

Í lýsingu hússins segir að það sé búið að tengja tvö hús saman í eitt og það sé fullkomið fyrir tvö pör. Þetta gæti líka hentað fjölskyldu en í húsinu eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. 

Þetta er steinsnar frá Reykjavík en Hafnarskógur er í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Þetta hús er tilvalið fyrir helgarferð þeirra sem vilja gera vel við sig í fallegu umhverfi.

Hver vill ekki verja helginni þarna?
Hver vill ekki verja helginni þarna? Skjáskot/Airbnb
Fjöllin og sjórinn.
Fjöllin og sjórinn. Skjáskot/Airbnb
Morgunmaturinn smakkast betur með þetta útsýni.
Morgunmaturinn smakkast betur með þetta útsýni. Skjáskot/Airbnb
Stílhreint og snyrtilegt.
Stílhreint og snyrtilegt. Skjáskot/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert