Þolkappreið á vegum Landssambands hestamannafélaga lauk um helgina á Þingvöllum eftir að keppendur höfðu riðið 240 kílómetra leið þvert yfir Ísland á fjórum dögum. Þessi keppnisgrein er þekkt um allan heim og nýtur mikilla vinsælda víða. Því má reikna með að kappreiðin geti vakið enn frekari athygli og áhuga á íslenska hestinum, ferðalögum á íslenska hestinum og Íslandi almennt.
Fjögur lið tóku þátt í keppninni og hvert lið samanstóð af einum knapa, tveim aðstoðarmönnum og þremur hestum. Keppnin hófst síðastliðinn miðvikudag á Lýtingsstöðum í Skagafirði, þaðan var riðið yfir Kjöl. Komu keppendur í mark á Skógarhólum á Þingvöllum síðdegis á laugardag.
Kappreiðin fór þannig fram að tveir hestar voru notaðir hvern dag og einn hvíldur. Hverjum hesti var riðið um 25-35 kílómetra leið í senn og aðrir hestar keyrðir á milli áfangastaða. Dýralæknir fylgdi keppnisliðunum og fylgdist vel með ástandi hestanna allan tímann. Á hverjum áfangastað var mæld öndun, púls og líkamlegt ástand hestanna.
Aníta Aradóttir er helsti hugmyndasmiður keppninnar, ásamt Helga Sigurðssyni dýralækni sem var liðunum innan handar. Aníta tók þátt í Mongólíukappreiðinni árið 2014 þar sem keppendur ríða yfir 1.000 kílómetra á 10 dögum.
Þrír kvikmyndatökumenn fylgdu keppninni eftir frá upphafi til enda og tóku upp mikið af efni sem mun án efa rata fyrir augu áhorfenda fyrr en síðar.
Í fyrsta sæti var Iðunn Bjarnadóttir á 18 klukkustundum og 40 mínútum, en hún keppti fyrir lið Riding Iceland Saltvík.
Í öðru sæti varð Annie Whelan frá Bandaríkjunum á 18 klukkustundum og 52 mínútum, en hún keppti fyrir lið Íslandshesta.
Samkvæmt fréttatilkynningu Landssambands hestamannafélaga var almenn ánægja meðal þátttakenda með hvernig til tókst og ánægjulegt að segja frá því að engin meiðsl eða áverkar urðu á hestum eða mönnum.
Erlendu keppendurnir, sem báðir hafa keppt víða um heim, höfðu orð á því að með þetta umhverfi, náttúru og þennan sterka hest hefðu Íslendingar alla möguleika til að gera góða hluti með þessa keppnisgrein í framtíðinni.
Um var að ræða alþjóðlegt prufumót í alþjóðlegri þolkappreið sem Landssamband hestamannafélaga hefur verið með í undirbúningi undanfarna mánuði.