„Ef þú segir bara „fuck it“ og gerir hlutina“

Patrekur Jamie að njóta lífsins í sólinni.
Patrekur Jamie að njóta lífsins í sólinni. Ljósmynd/Aðsend

Patrekur Jamie er áhrifavaldur og sjónvarpsstjarna sem margir kannast við. Patreki finnst gaman að ferðast og mælir með að fólk sé óhrætt við að taka áhættur og prófa eitthvað nýtt.

Síðasta ferðalagið sem þú fórst í?

„Síðasta ferðalagið sem ég for í var til Kúbu. Það var fyrir hálfum mánuði og það var svo gaman.“

Eftirminnilegasta ferðalagið?

„Eftirminnilegasta ferðalagið mitt var þegar ég fór í þrjá og hálfan mánuð til Chile að heimsækja alla föðurfjölskyldu mína og get ég ekki beðið að fara aftur.“

Það var eftirminnilegt að heimsækja föðurfjölskylduna til Chile í þrjá …
Það var eftirminnilegt að heimsækja föðurfjölskylduna til Chile í þrjá mánuði. Ljósmynd/Aðsend

Áttu þér draumaferðalag?

„Mig langar svo að fara í siglingu í kringum Karabíska hafið en mig langar líka að ferðast til Afríku og þá til Kenía eða Suður Afríku.“  

Einhver góð ferðaráð?

„Ekki vera hræddur við að prófa eitthvað nýtt, skoða sig um og taka áhættur úti. Þú getur lent í svo skemmtilegum hlutum ef þú segir bara „fuck it“ og gerir hlutina.“

Skemmtilegustu ferðafélagarnir?

„Binniglee er manneskjan sem ég hef farið oftast til útlanda með af vinum mínum og það er alltaf gaman hjá okkur. Svo er það líka amma Magga en við vorum dugleg að fara út saman og það var svo skemmtilegt.“

Binni Glee er skemmtilegasti ferðafélaginn. Þeir ferðuðust t.d. saman til …
Binni Glee er skemmtilegasti ferðafélaginn. Þeir ferðuðust t.d. saman til Kúbu á dögunum. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig ætlarðu að verja sumrinu?

„Ég er með nokkur verkefni fyrir sumarið en annars ætla ég að ferðast og njóta með vinum og fjölskyldu.“

Eru einhver ferðalög framundan?

„Já, ég er að fara til Tenerife í lok mars og svo New York í maí. Í sumar fer ég svo til Ítaliu og vonandi Amsterdam um haustið.“

Patrekur Jaime var í þrjá mánuði í Chile.
Patrekur Jaime var í þrjá mánuði í Chile. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert