Jólin eru tími ljóss og friðar. En fyrir marga sem eru með ung börn, þá virðist álagið í kringum jólin nánast bugandi. Þá er ágætt að hafa smávegis húmor í farteskinu og skoða hvernig aðrir eru að gera hlutina.
Kristen Williams er ung móðir sem margir fylgja þessa dagana. Hún sýnir lífið eins og það er. Er hress og skemmtileg. Hún segir skoplegar sögur af því sem allir foreldrar þekkja. Meðal annars því þegar dóttir hennar er hljóðlát um stund og er þá stundum að dunda sér við eitthvað sem hún ekki má.
það kannast einnig margir við að börnin læðist í tölvuna. Stundum hefur dýrmætum skjölum verið eytt af litlum puttum sem elska að ýta á hnappana og sjá hlutina hverfa af skjánum.
Ef þú heldur að þitt líf sé dramatískt og þú eigir eftir að gera allt fyrir jólin og sért sú eina/sá eini um það. Ekki missa af Williams og því sem hún er að bralla þessa dagana. Jólatréð hennar úr óhreinum þvotti er kannski ekki svo slæm hugmynd eftir allt saman.