Rachel McAdams prýðir nýjustu forsíðu Girls.Girls.Girls. Þegar myndirnar af leikkonunni voru teknar var sonur hennar sex mánaða og hún enn með hann á brjósti. Ljósmyndarinn Claire Rothstein myndaði hana á flottri mynd með brjóstapumpu á brjóstunum í hátískufatnaði en hún segir McAdams hafa þurft að mjólka sig á milli þess sem myndir voru teknar af henni.
Rothstein birti myndina á Instagram þar sem hún vildi vekja athygli á að brjóstagjöf sé það eðlilegasta í heimi. Hún segir að það þurfi ekki endilega útskýra myndina en vildi bara vekja athygli á því enda sumir sem hræðast brjóstagjöf.
Ljósmyndarinn tekur það einnig fram að hún hafi engan veginn litið eins vel út og McAdams þegar hún sjálf var að gefa brjóst. Sem er kannski skiljanlegt þar sem McAdams var með heilt förðunarteymi á bak við sig og klædd í föt frá Versace á myndinni.