Fyrirsætan Iskra Lawrence greindi frá því í vikunni að hún og kærasti hennar, Philip Payne, ættu von á barni. Lawrence sem er þekkt fyrir ávalar línur er það sem er stundum kallað „stór“ fyrirsæta. Hún segist hafa verið á pillunni þegar hún varð ólétt.
Í myndbandi á Youtube segir Lawrence frá því að hún hafi verið á getnaðarvörn en hafi kannski ekki alveg verið með stjórn á henni, enda mikilvægt að muna eftir því að taka hana alltaf og á réttum tíma. Þau eru bæði ánægð með að von sé á erfingja en játa að óléttan hafi komið verulega á óvart.