„Erum algjörir rugludallar heima“

Ashton Kutcher og Mila Kunis segjast vera algjörir rugludallar heima …
Ashton Kutcher og Mila Kunis segjast vera algjörir rugludallar heima hjá sér. mbl

Leikarahjónin Ashton Kutcher og Mila Kunis halda uppeldinu á léttu nótunum heima fyrir. Þau segjast reglulega gera sig að fífli heima fyrir framan börnin. 

„Við erum aulalegir foreldrar þegar kemur að börnunum okkar, en það þýðir ekki að við séum hæfileikarík,“ sagði Kunis í viðtali við E! News

„Við erum algjörir rugludallar heima, en það er kannski af því að okkur líður vel í eigin líkama, okkar eigin skinni og í huga okkar og erum ekki hrædd við að gera okkur að fífli,“ sagði Kunis. 

Þó að allt sé á léttu nótunum á heimili þeirra þýðir það ekki að börnin þeirra tvö, hin 5 ára Wyatt og 3 ára sonurinn Dimitri, séu alltaf til í fíflaganginn í foreldrum sínum. 

„Ég reyni stundum að lesa bækur dóttur okkar með röddum karakteranna og hún biður mig um að nota bara venjulegu röddina mína,“ sagði Kutcher. 

„Ég nota kannski breskan hreim þegar ég les Guggu grís og síðan pabbann og allt. Og hún vill ekki heyra það,“ sagði Kutcher. Hann segir dóttur þeirra frekar vilja fá að heyra sögur úr lífi foreldra sinna en úr bókum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert