Melania skoðar skóla fyrir Barron Trump

Melania Trump er sögð vera að skoða skóla fyrir Barron …
Melania Trump er sögð vera að skoða skóla fyrir Barron Trump. AFP

Það styttist í að Donald Trump og fjölskylda yfirgefi Hvíta húsið. Trump á nóg af fasteignum og þykir líklegt að hann flytji til Flórída með eiginkonu sinni Melaniu Trump og syni þeirra, hinum 14 ára gamla Barron Trump. Melania er sögð vera að skoða skóla fyrir soninn í Flórída. 

„Melania er að skoða góða skóla fyrir Barron,“ sagði heimildarmaður People þegar fjallað var um mögulega búferlaflutninga þeirra til Mar-a-Lago í Flórída. „Þau hafa leitað út um allt að rétta skólanum í Palm Beach-sýslu og nágrannasýslunni Broward. Það eru nokkrir möguleikar og þau ákveða sig fljótlega.“

Barron Trump er nú nemandi við St. Andrews's Episcopal School í Maryland. Hann hefur verið nemandi við skólann síðan haustið 2017 og er í fjarkennslu eins og stendur. Melania Trump er þekkt fyrir að hugsa afar vel um son sinn. Forsetafrúin flutti til dæmis ekki strax í Hvíta húsið með manni sínum þegar hann tók við völdum í byrjun árs 2017. Mæðginin urðu eftir í New York svo Barron gæti lokið skólaárinu í skólanum sínum.

Barron Trump, Donald Trump og Melania Trump í sumar.
Barron Trump, Donald Trump og Melania Trump í sumar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál