Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson og eiginkona hans Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári. Alexandra tilkynnti gleðifréttirnar á samfélagsmiðlum nú í kvöld.
Í færslu sinni segir Alexandra að þau hjónin hafi glímt við ófrjósemi í fimm ár.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!