Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja sendu frá sér jólakort í vikunni. Hertogahjónin af Cambridge stilltu sér upp úti með börnum sínum þeim Georg prins, Karlottu prinsessu og Lúðvík litla prins en myndin var tekin á sveitasetri þeirra í Norfolk á Englandi.
Öll fjölskyldan brosir sínu breiðasta á myndinni. Það er yngsta barn hjónanna, hinn tveggja ára gamli Lúðvík, sem stelur senunni. Á myndinni má sjá Lúðvík nánast öskra af gleði á meðan fjölskylda hans virkjar vel þjálfaða brosvöðvana.
„Hertoginn og hertogaynjan eru ánægð með að deila nýrri mynd af fjölskyldunni sem er einnig á jólakorti þeirra í ár,“ stóð í tilkynningu Kensingtonhallar.