Jónas Már Torfason, sonur Ölmu Möller landlæknis, og kærasta hans Andrea Gestsdóttir eiga von á tvíburum á næsta ári. Jónas greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Facebook.
Tvíburarnir verða fyrstu barnabörn Ölmu Möller og því ljóst að hún mun taka við gríðarlega stóru hlutverki á nýju ári sem tvíburaamma.
Tvíburar Jónasar og Andreu eru væntanlegir í maí næstkomandi, en þau eiga von á litlum stúlkum.
Barnavefurinn óskar þeim öllum innilega til hamingju!