Harry Potter-stjarnan Rupert Grint segir að margt hafi breyst hjá honum þegar hann varð faðir í fyrsta sinn. Hann hætti að reykja og fór að sofa mun betur.
Grint og kærasta hans Georgia Groome eignuðust sitt fyrsta barn, dótturina Wednesday, snemma á síðasta ári. Hann segist enn vera að venjast því að vera faðir og læra inn á hlutverkið.
„Þetta er svo gaman. Mér líður eins og ég hafi breyst sem manneskja. Þetta gerðist eiginlega á einni nóttu hvað varðar lífsstílinn. Ég hætti strax að reykja. Fór að sofa mun betur, ég gat aldrei sofið, núna sef ég,“ sagði Grint í viðtali við Glamour.
Hann segir að það hafi verið áhugavert að eignast barn í heimsfaraldrinum og að upplifunin hafi verið enn ýktari.
„Við höfum bara verið saman, að finna út úr þessu í húsi. Mér finnst ég vera miklu ... ég veit ekki hvað, undarlega rólegri. Þetta hefur verið mjög róandi ferli. Augljóslega eru dagar þar sem allt er á fullu hjá henni. En það er eitthvað svo notalegt við rútínuna. Það hefur komið mér á góðan stað,“ sagði Grint.