Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman í sumar. Parið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag. Logi og Hallveig eru búin að vera saman í þrjú ár.
„Hún er með barn í maganum, lítið ágústbarn!“ skrifaði Logi á samfélagsmiðla sína. „Litla fjöllan sem stækkar í ágúst,“ skrifaði Hallveig og birti mynd af fjölskyldunni.
Fyrir á Logi Pedro son með leikkonunni og tónlistarkonunni Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur.